KENNSLUÁÆTLUN
HÆFNIVIÐMIÐ
Nemandi skal að loknu námskeiði:
-
Hafa þjálfast í færni við að vinna sjálfstætt og í hóp
-
Geta farið eftir uppskriftum og fyrirmælum
-
Þekkja helstu mælitæki og eldhúsáhöld
-
Hafa eldað og bakað fjölbreytta fæðu
-
Þekkja fæðuhringinn
-
Geta farið eftir leiðbeiningum um þrif og hreinlæti
-
Geta flokkað og gert sér grein fyrir áhrifum þess á umhverfið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
-
Vinna sjálfstætt
-
Lesa og fara eftir uppskriftum
-
Þekkja fæðuhringinn
-
Útfæra fjölbreyttar máltíðir
-
Flokka
Námsmat byggist á ástundun og frammistöðu í tímum. Tekið er mið af verkefnum og umgengni í tímum.
Í lok námskeiðs skila nemendur ferilmöppu með öllum verkefnum sem unnin eru á námskeiðinu.
Námsmat:
Verkefni 40%
Frammistaða í tímum og mæting 45%
Ferilmappa 15%
Samtals: 100%
ATH! Kennari áskilur sér rétt til breytinga á kennsluáætlun og námsmati ef svo ber undir.
Ferilmappa
Nemendur skila ferilmöppu í lok námskeiðsins sem inniheldur allt sem unnið hefur verið yfir önnina á námskeiðinu.
Efni ferilmöppunnar á að vera eftirfarandi:
-
Forsíða (skreytt að vild) fram komi nafn áfanga, nemanda og bekkur.
-
Öll verkefni úr tímum
-
Lokaorð (1/2 – 1 bls) um námskeiðið og hvernig það nýttist nemendum. Nemendur eru hvattir til að rekja áfangann með nokkrum orðum og koma með sínar skoðanir á námskeiðinu, með a.m.k. einu hrósi og einni rökstuddri gagnrýni.