top of page

kveikjan að heimasíðunni

Hugmyndin kviknar í vinnu verkefna við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Reynsla okkar sem foreldrar barna í grunnskóla er sú að upplýsingaflæði til foreldra er oft ábótavant. Því fannst okkur upplagt að hafa kennslugögn aðgengileg á vef sem væri gagnlegur bæði foreldrum og nemendum innan sem utan kennslustofunnar. Með því skapast tækifæri að vinna einnig með námsefnið heima fyrir jafnhliða skólastarfi og auka hæfni nemenda. Auk þess fá foreldrar tækifæri á að vera meira innviklaðir í námi barna sinna. Komandi kynslóðir lifa meira og meira í hinum stafræna heimi og því er krafa um stafrænt námsefni alltaf að aukast. Líklegt er einnig að auðveldara sé að ná til og vekja áhuga nemenda í dag með vel útfærðu gagnvirku námsefni.

UM OKKUR
ÁOGR.png

RUTH

Ég lauk sveinsprófi í hársnyrtiiðn árið 2008 og útskrifaðist úr Meistaraskólanum árið 2011. Síðustu 15 ár hef ég starfað við fagið mitt af mikilli ástríðu. Það helltist yfir mig löngun til að auka við þekkingu mína og fara aðeins út fyrir þægindarammann sem ég gerði með því að skrá mig í Kennslufræði fyrir iðnmeistara hér við Háskóla Íslands. Ég kláraði námið núna á síðustu önn og mun útskrifast í febrúar næstkomandi.
Að mínu mati tel ég mikilvægt að leggja meiri áherslur á list- og verkgreinar í grunnskólum landsins. Ég lét draum minn rætast og bjó til áfanga sem hentar fyrir  unglingastig og kenni ég námskeiðið í tveimur grunnskólum, hver veit nema þeir verði fleiri einn daginn.

ÁSA LÁRA
Ég er kjólameistari og nemandi í kennslufræði fyrir iðnmeistara.  Sveinsprófið kláraði ég árið 1997 og meistaraskólann árið 2013. Haustið 2018 ákvað ég að ögra sjálfri mér með því að fara í kennslufræði sem ég kláraði núna um áramót. Hönnun námsefnis er eitthvað sem ég hef áhuga á að læra meira um og því ákvað ég að taka tvo áfanga aukalega.
Ég rak saumaverkstæði í mörg ár, hef starfað í búningadeild Íslensku Óperunnar, heildverslun starfsmanna- og tískufatnaðar en  núverandi starf mitt er leiðbeinandi á vinnustofu iðjuþjálfunar.
GettyImages-553202199_edited.jpg
HEIMILDIR
Uppskriftir
Þuríður H. Guðbrandsdóttir
Veganistur - heimasíða
Úr einkasafni
 
 
Myndefni
Wix
Unsplash
Flaticon
Úr einkasafni
bottom of page