top of page
ÁFANGALÝSING
Heimilisfræði er bóklegt og verklegt nám. Áhersla er lögð á matvælagerð, hreinlæti og næringarfræði. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru kynnt fyrir nemendum og hvernig má tengja þau við fagið. Leitast er eftir því að vekja áhuga nemenda á næringar- og hollustuháttum í samstarfi við foreldra sem eru hvattir til að örva börn sín í að vera virk í heimilisstörfum. Foreldrar geta stuðst við kennsluvefsíðuna til að fylgjast betur með námi barnanna í heimilisfræði og nýtt efnið saman heima.
bottom of page