
Hvers vegna á ég að endurvinna og flokka?
-
Úrgangurinn er dýrmæt auðlind. Ýmsar náttúruauðlindir jarðar, t.d. skógar, jarðolía, jarðvegur og málmur eru notaðar til að framleiða þær vörur sem við kaupum og þær eru ekki óendanlegar.
-
Þegar notuð vara er endurunnin er henni breytt í nýja vöru án þess að gengið sé á náttúruauðlindir.
-
Úrgangur er því verðmætt hráefni sem með endurvinnslu kemur aftur inn í hringrás framleiðsluferilsins. Sem dæmi má nefna að þegar áldós fer á urðunarstað og er grafin þar í jörðu ásamt öðru sorpi er hún ekki lengur verðmætt hráefni, þar sem ekki er hægt að nýta álið í henni í nýja dós.
-
Náttúran er takmörkuð auðlind sem ber að nýta vel. Endurvinnsla sparar auðlindir jarðar, orku og dregur úr urðun.
-
Sem dæmi um orkusparnað þá krefst endurvinnsla áls aðeins 5% þeirrar orku sem þarf við frumvinnslu áls.
-
Pappír þarf 60% minni orku við endurvinnslu pappírs en frumvinnslu hans. Endurvinnsla pappírs sparar auðlindir því fyrir hvert tonn af endurunnum pappír sparast 17 tré.
-
Endurvinnsla veldur mun minni mengun en frumvinnsla. Sem dæmi má taka að við endurvinnslu pappírs myndast 70% minni loftmengun en við frumvinnslu hans.
-
Með því að flokka og endurvinna lengjum við líftíma urðunarstaða þannig að lengri tími líður þar til við þurfum að finna nýjan. Til dæmis sparast allt að 3 rúmmetrar í landfyllingu fyrir hvert tonn af pappír sem fer í endurvinnslu.




Lífræn söfnun
-
Það er áríðandi að allur lífræni úrgangurinn fari í sérstaka poka, úr maís/kartöflusterkju og bundið sé fyrir áður en þeir eru settir í hólfið í tunnunni sem ætlað er fyrir lífræna úrganginn eða í sérstakar tunnur. Þessir pokar eru umhverfisvænir og brotna niður í jarðgerðarferlinu ásamt innihaldinu.
-
Lífræna efnið sem er safnað er eftirfarandi: Ávextir og ávaxtahýði, grænmeti og grænmetishýði, egg, eggjaskurn, eldaðir kjöt- og fiskafgangar, mjöl, hrísgrjón og pasta, brauð, kökur, tepokar og kaffikorgur. Einnig mega notaðar servíéttur og eldhúsbréf fara með í tunnuna.
-
Athugið að binda vel fyrir pokana áður en þú setur þá í söfnunartunnuna. Venjulega plastpoka má alls ekki nota.
-
Fólk ber sjálft ábyrgð á hreinleika ílátanna. Lykt frá ílátum er ekki frá lífræna efninu sem verið er að safna, heldur má rekja lyktina í öllum tilfellum til umgengninnar við ílátið. Því er það mikilvægt að íbúar haldi ílátunum hreinum.
-
Gert er ráð fyrir að lífrænum úrgangi sé safnað frá íbúum á tveggja vikna fresti og er lífræna efninu frá íbúunum blandað (stoðefnum) timburkurli, húsdýraskít og efni sem er þegar búið að jarðgera að hluta.
Spilliefni


