top of page
Brauðbollur
Klassískar brauðbollur sem öllum þykja góðar. Móta má deigið í mismunandi form t.d. bollur, kringlur eða fléttubrauð.

HRÁEFNI
1½ dl volgt vatn
1msk. olía
2 tsk. þurrger
1tsk. sykur
½ tsk. salt
2 dl hveiti
1dl heilhveiti
1msk. fræ t.d. graskers- eða birkifræ
ÁHÖLD
Þeytari
Mæliskeiðar
Desilítramál
Hnífur og skurðarbretti


Byrjið á að
stilla ofninn á 200°C og blástur.
Mælið öll hráefnin í skál og hrærið vel.

Hnoðið
deigið vel saman á borðinu og notið hveiti eftir þörfum. Deigið á að vera klístrað en ekki of blautt. Gefið ykkur góðan tíma í að hnoða.

Mótið
deigið í jafnstórar bollur en ekki taka of langan tíma í það því deigið þarf að hafa tíma til að lyfta sér.

Raðið
bollunum á plötu með bökunarpappír og hafið hæfilegt bil á milli.
Penslið bollurnar með mjólk eða eggi og stráið fræum yfir (má sleppa).

Leyfið
bollunum að lyfta sér í 10─20 mínútur á volgum stað.
Þegar þær eru búnar að lyfta sér eru þær settar inn í miðjan bakaraofn.

Bakið
bollurnar í 10─12 mínútur eða þar til þær eru orðnar gylltar að lit.
Berið fram volgar bollur með smjör, osti eða öðru áleggi sem ykkur þykir gott.
bottom of page