top of page

Pítsabotn

Tvær gerðir af pítsabotnum, klassískur og hollari útgáfa með grófara mjöli.

pítsa.JPG

HRÁEFNI

2 hefðbundnir botnar

5 ½ dl hveiti

1 ½ tsk. þurrger

1 ½ tsk. sykur

2 msk. olía

1 tsk. salt

2 ¼ dl volgt vatn

ÁHÖLD

Hrærivél m.krók

Sleif

Desilítramál

Mæliskeiðar

Kökukefli

Hnífur og skurðarbretti

Image by Samee Anderson

Byrjið á að

hita ofn í 225° C blástur og hafið bökunarplötu inni.

Takið allt hráefnið til.

Blandið öllum þurrefnum sama í hrærivélaskálinni.

Bætið restinni af hráefnum út í og vinnið rólega saman fyrst og síðan kröftulega þar til allt hefur samlagast.

Gott getur verið að nota sleif til að hjálpa til að ná af hliðunum.

_edited.jpg

Látið deigið

hefast á hlýjum stað með viskastykki yfir skálinni. 

Eftir u.þ.b. 15 mín. er deigið hnoðað kröftulega á ný á borði.

Gott er að setja smá hveiti á borðið áður en ekki of mikið.

psósa.PNG

Skiptið deiginu

í tvennt og fletjið út með kökukefli.

Passið að fletja deigið ekki of þunnt út en æskileg stærð er á við matardisk.

Setjið botna á heita bökunarplötu sem er klædd með bökunarpappír.

Smyrjið sósu á og setjið að lokum það álegg sem óskað er, ost fyrst, svo kjöt og að lokum grænmeti.

Bakið í 8 - 10 mín. eða þar til ostur er bráðinn.

HRÁEFNI

Hollari útgáfa

½ dl hveiti

1 ½ dl rúgmjöl

3 tsk. lyfitduft

2 msk. ólífuolía

½ tsk. salt

1 tsk. pítsakrydd

1½ -1¾ dl heitt vatn

ÁHÖLD

Hrærivél m.krók

Sleif

Desilítramál

Mæliskeiðar

Kökukefli

Hnífur og skurðarbretti

innihald holl.PNG

Byrjið á að

hita ofn í 225° C blástur.

Takið allt hráefnið til.

Blandið öllum þurrefnum sama í hrærivélaskálinni.

Bætið restinni af hráefnum út í og vinnið rólega saman fyrst og síðan kröftulega þar til allt hefur samlagast.

Gott getur verið að nota sleif til að hjálpa til að ná af hliðunum.

_edited.jpg

Látið deigið

hefast á hlýjum stað með viskastykki yfir skálinni. 

Eftir u.þ.b. 15 mín. er deigið hnoðað kröftulega á ný á borði.

Gott er að setja smá hveiti á borðið áður.

Skiptið deigi í tvennt og fletjið út með kökukefli.

Passið að fletja ekki of þunnt út en æskileg stærð er á við matardisk.

pálegg.JPG

Setjið botna

á bökunarplötur sem er klædd með bökunarpappír.

Forbakið í miðjum ofni í 5 mín.

Smyrjið sósu á og setjið að lokum það álegg sem óskað er, ost fyrst, svo kjöt og að lokum græmeti.

Bakið í 8 - 10 mín. eða þar til ostur er bráðinn.

bottom of page