top of page
kjúklingavefja
Einfaldur og fljótlegur réttur sem hentar bæði í hádegis- og kvöldmat

HRÁEFNI
4 vefjur (fyrir fjóra)
1 pk. kjúklingastrimlar eða afgangskjúklingur
2 lárperur
4 msk. grænt pestó
2 tómatar
Salat að eigin vali
Salt og pipar
ÁHÖLD
Hnífur og skurðarbretti
Panna
Spaði

Byrjið á að
taka allt hráefnið til.
Skerið niður avacado í strimla og tómata í sneiðar.

Smyrjið vefjur
með pestóinu.
Raðið salati, kjúkling og grænmeti á vefjurnar.
Lokið vefjunum með því að rúlla þeim saman.

Steikið vefjur
á pönnu á báðum hliðum þar til gylltar.
Ýmislegt annað er hægt að nota á vefjurnar og því er þessi réttur tilvalinn í að klára það sem til er í Ísskápnum.
Spornum við matarsóun :)
bottom of page