top of page

Hollar og góðar lummur

Frábærar lummur sem henta bæði með kaffinu eða sem hádegisverður

Image by Fa Barboza

HRÁEFNI

2 egg

2 dl mjólk

1 msk. olía

½ - 1 þroskaður banani 

1 dl hveiti

1 dl haframjöl

2 tsk. lyfitduft

½ salt

Örlítið af vanillu

ÁHÖLD

Skál

Gaffall

Mæliskeiðar

Desiltíramál mál

Handþeytari

Panna

Cake Whisking

Byrjið á að

taka öll hráefni til.

Brjótið egg í skál og mælið mjólk og olíu saman við.

Takið hýðið af banananum og stappið saman við með gaffli. 

Mælið restina af hráefnum og blandið vel samanvið með þeytara.

Image by Jelleke Vanooteghem

Hitið pönnuna

á meðalhita með örlítð af olíu.

Setjið degið á með skeið í hæfilega stórar lummur.

Bakið þar til loftbólur hafa myndast.

Snúið þá við með spaða og bakið þar til þær eru orðnar gullinbrúnar.

Image by Allison Pieterse

Njótið 

með sneið af osti og áleggi eða sírópi, rjóma og sultu.

Lummur er líka góðar með hnetusmjöri og berjum.

Verði ykkur að góðu!

bottom of page