top of page

DÖÐLUKAKA MEÐ KARAMELLU

Einstaklega góð en einföld kaka. Döðlukakan er borin fram með rjóma eða ís og hentar bæði með kaffinu og sem eftirréttur.

unsplash-7u_wURCg5rw_edited.jpg

HRÁEFNI

250 g döðlur

1 tsk. matarsódi

120 g smjör við stofuhita

5 msk. hrásykur

2 egg

180 g hveiti

½ tsk. salt

½ tsk. vanilludropar

1½ msk. lyftiduft

100 g súkkulaðispænir

ÁHÖLD

Smelluform

Vog

Mæliskeiðar

Pottur

Hrærivél - þeytari

Sleikja

d%C3%B6%C3%B0lur_edited.jpg

Byrjið á að

hita ofninn í 180°C og smyrjið 25 cm hringlaga smelluform. Setjið döðlur í pott og hellið vatni í þangað til það flýtur yfir. Takið pottinn af hellunni þegar byrjar að sjóða og látið standa í nokkrar mín.

Blandið matarsóda við döðlurnar og hrærið vel en þá freyðir.

Leyfið blöndunni að kólna.

d%C3%B6%C3%B0lu_edited.jpg

Smjör og sykur

hrært saman þar til létt og ljóst.

Eggjum bætt við eitt í einu og þeytið vel á milli.

Þá er þurrefnum og vanillludropum bætt við og að lokum döðlumauki.   

d%C3%B6%C3%B0lu_edited.jpg

Þegar deigið

hefur samlagast vel er súkkulaðispæni bætt út í volgt deigið.

Hrærið vel svo það bráðni og samlagist vel.

Hellið deiginu í smurt smellu-form og bakið í miðjum ofni við 180°C í 35 – 40 mínútur.

Ekki baka kökuna of mikið svo hún verði ekki þurr.

HRÁEFNI Í KARAMELLU

120 g púðursykur

120 g smjör við stofuhita

1 1/2 dl rjómi

1/2 tsk. vanilludropar

ÁHÖLD

Vog

Mæliskeiðar

Desilítramál

Pottur

Trésleif

Image by Yulia Khlebnikova

Byrjið á að

setja öll hráefni í pott. Hrærið rólega þangað til suðan kemur upp.

Látið karamelluna sjóða í 3 - 4 mín.

Passið að brenna ykkur ekki því karamellan verður mjög heit.

_edited.jpg

Karamellunni

er hellt yfir kökuna eftir að hafa kólnað örlítið. 

Kökuna má baka í ýmsum gerðum af formum jafnvel muffinsformum.

Image by Matt Seymour

Njótið 

helst með rjóma eða ís.

Verði ykkur að góðu.

bottom of page