top of page
Hollur og góður þeytingur
Frábær drykkur sem hentar bæði sem létt máltíð eða millimál.

HRÁEFNI
1 banani
1 dl frosin jarðaber
1 dl frosin bláber
2 döðlur
2 dl möndlu-, hafra- eða sojamjólk
Örlítið af vanillu
Klakar að vild
ÁHÖLD
Blandari
Hnífur og skurðarbretti
Desilítramál

Byrjið á að
taka allt hráefnið til.
Takið hýðið af banananum og skera í u.þ.b. 2 cm bita.
Skolið ber og hreinsið ef þau eru fersk.
Takið stein úr döðlum ef þarf.

Blandið
öllum hráefnum saman í blandaraskálina.
Blandið vel saman þangað til blandan er orðin silkimjúk og án kekkja.

Hellið í
fallegt glas og skreytið jafnvel með bláberjum.
Njótið!
Prófið endilega að bæta einhverju nýju næst þegar þið gerið drykkinn t.d. öðrum berjum, chia fræjum eða notið hugmyndaflugið.

bottom of page