top of page
Súkkulaðikaka
Klassísk súkkulaðikaka með smjörkremi - Vegan útgáfa

HRÁEFNI
3 bollar hveiti
2 bollar sykur
½ bolli kakó
2 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
2 bollar vatn
⅔ bolli bragðlaus olía
2 tsk. vanilludropar
1 msk. eplaedik

ÁHÖLD
Skál
Sleif
Mæliskeiðar
Bolli
Hrærivél

Byrjið á að
stilla ofn á 175° C blástur.
Takið öll hráefnin til.
Blandið þurrefnum saman í hrærivélaskálina.

Blandið
restinni af hráefnum saman við og hrærið þar til deigið er slétt og án allra kekkja.

Skiptið
deiginu í tvö 24 cm hringlaga form eða notið eina stóra ofnskúffu og bakið í 20 mínútur.
HRÁEFNI Í KREMIÐ
350 g smjörlíki
500 g flórsykur
1/2 dl kælt kaffi
1 msk. kakó
1 tsk. vanilludropar
50 g 70% súkkulaði
ÁHÖLD
Vog
Mæliskeiðar
Desilítramál
Hrærivél
Trésleif

Byrjið á að
þeyta smjörið í hrærivél þar til það er orðið mjúkt.
Síðan er öllum hráefnunum bætt við ofan í skálina nema súkkulaðinu, hrærið vel saman.

Bræðið
súkkulaði í potti við lágan hita og hellið því síðan út í stóru skálina með öllu hráefninu og hrærið rólega saman.

Kremið
er sett kökuna þegar hún er búin að kólna.
Smyrjið kreminu vandlega á eða notið sprautupoka. Berið fram og njótið vel.
bottom of page