top of page

PYLSUPASTA

Einfaldur og fljótlegur réttur sem hentar bæði í hádegis og kvöldmat

Image by Nerfee Mirandilla

HRÁEFNI

300 g pasta að eigin vali 

10 pylsur

1 peli rjómi

½ piparostur

½ grænmetisteningur

½ sveppateningur

Smá cayanne pipar og sinnepskrydd

ÁHÖLD

Vog

Pottur

Hnífur og skurðarbretti

Panna

Spaði

Image by Michal Balog

Byrjið á að

taka allt hráefnið til.

Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum. 

Skerið pylsurnar í u.þ.b. eins sentimetra bita.

Hellið vatni af pastanu þegar það er tilbúið og leggið til hliðar.

Image by Donovan Valdivia

Steikið

pylsurnar upp úr smá olíu á pönnu þar til þær eru komnar með fallega húð. Matreiðslurjómanum er næst hellt yfir og smátt skornum piparostinum. Þegar osturinn byrjar að bráðna er grænmetis- og sveppateningnum bætt í.

Image by engin akyurt

Smakkið

ykkur til með kryddum og hrærið vel í.

Setjið pastað út í og blandið vel saman.

Gott er að bera pasta fram  nýbökuðum brauðstöngum.

Prófið að bæta einhverju nýju næst þegar þið gerið réttinn t.d. papriku, afgang af kjúkling eða notið hugmyndaflugið.

bottom of page