top of page

Sætkartöflusúpa

Matarmikil og ljúfeng súpa sem hentar bæði sem hádegis- og kvöldmatur.

Squash%20Soup_edited.jpg

HRÁEFNI

1 stk. stór sæt kartafla

1 stk. gulur laukur

5 dl grænmetissoð

4 dl kókosmjólk

½ ferskur engifer

Salt og pipar 

ÁHÖLD

    

Þeytari

Mæliskeiðar

Desilítramál

Hnífur og skurðarbretti

Töfrasproti

Image by Louis Hansel @shotsoflouis

Byrjið á að

skera niður sætu kartöfluna, laukinn og engiferið.

Setjið grænmetið í pott ásamt grænmetissoðinu og leyfið suðunni að koma upp.

Image by Jason Briscoe

Þegar

suðan er komin upp látið þá súpuna malla í 15-20 mínútur.

Að því loknu er kókosmjólkin sett út í og súpan látin malla í 5 mínútur í viðbót.

Image by Cayla1

Maukið súpuna

með töfrasprota þegar kartöflurnar eru orðnar mjúkar.

Kryddið með salt og pipar eftir smekk, jafnvel chilliflögum.

Stráið ristuðum graskers-fræum og kókosi yfir súpuna.

Gott er að bera súpuna fram með salati og nýbökuðum brauðstöngum.

bottom of page